* Profile *

Nafn: Þórunn / Tóda
Aldur: 20
Afmæli: 30 Október
Mood: *Cutie*
Msn: tota@gella.is
Email:tota@gella.is

Blaðurskjóðan!!

Nafn

Email eða Vefsíða

Skilaboð(smilies)

* Linkar *

Fjölskyldan.
* Inga Dóra Kjútí
* Kristín G.
* Guðrún Systir.B
* Axel Kjáni.



Ég les.
* Arndís.
* Steinunn Helga.
* Kristín Kiskis.
* Stína Snjósnákur.
* Kozy Vitleysingur.
* Sæsi.
* SiggaE.
* Konni.
* Addi.
* Róbert
* Steinkaaaaa.
* Svava.
* Iris.
* Ingan.
* Gudda.
* Áslaug.
* Birna Dís.
* Jóna Gella.
* Rósa
* Jana.
* Lilja.


Litlu Krílin.

* Ismael Aron.
* Hörður Ingi.
* Ingólfur Myrkvi.
* Brynjar Örn.
* Emilý Dögg.


Teljari




* Gamalt röfl *


Archives
<-- -->
<$BlogDateHeaderDate$>
<$BlogDateHeaderDate$>
<$BlogDateHeaderDate$>
<$BlogDateHeaderDate$>
<$BlogDateHeaderDate$>
<$BlogDateHeaderDate$>
<$BlogDateHeaderDate$>
<$BlogDateHeaderDate$>

* 14 ágúst 2004 *

Síðustu dagar lífs mín? Nei bara smá innskot úr "síðustu" dögum :P Við getum sagt að sperhræðsla (eða hvernig sem það er nú skrifað) skipti mig engu máli þegar í botninn á glasinu er komið. Bókstaflega. Ég og Hjördís ákváðum seint á þriðjudaginn að skella okkur á P!NK þar sem okkur boðust miðar. Við skelltum í okkur bjór, eplasnafns og einhverjum vodablöndum áður en við fórum inn. Kristín og Gummi sem við vorum með fóru heim að sulla í sig því framundan var kvöld fullt af ævintýrum ;) Svo komum við Hjördís til þeirra í breiðholtið eftir tónleikana. Sveittar, fullar og komnar á gelgjuskeiðið.

Tónleikarnir voru fínir, það svona sem ég man eftir þeim. En þeir voru ekkert eins svakalegir og þeir hefðu verið auglýstir. Sá t.d ekkert þetta "flotta ljósashow" sem átti að vera. Nóg um það.

Okkur vantaði eitthvað að gera, en fyrr um daginn þá var nauthólsvík málið. Vegna góða veðrisins. Við bjölluðum í Pjúdda beiby og hann kom alveg right away til að skutla okkur byttunum. Veit ekki hvað ég var að rugla í honum, en eitthvað var það heheh. Svo komum við á áfangastaðinn okkar, Nauthólsvík. Á 6 sek vorum við orðin nakin þarna ofan í. :| Hahahah.. Þetta var alveg vel hresst. Vorum ofan í í alveg vel meira en 1 klukkutíma. Orðið vel kalt í endann held ég. En ég man semsagt ekkert voðalega mikið eftir þessu kvöldi ;)

Miðvikudagurinn fór í sjónvarpsgláp bara. En á fimmtudaginn var komið eitthvað stuð í okkur skvísurnar. Skelltum í okkur Jack Daniels, og fórum á 11-una að sjá Days of our lives. Ég sá nú alveg minnst af sökum þrengsla þarna uppi. En það var fínt. Steinunn kom einmitt og var með okkur :) Jóna og Chris? Kíktu á okkur og sögðu bless því Jóna er að flytja til .dk í 2 ár. Aftur var kvöldið endað í nauthólsvík. En engin nekt núna.. núna hafði ég nærbuxurnar á mér ;) Nema hinir, í nærum og brjóstó. Týpiskt ég. Svo kom Gummi, life saver og bauð okkur far heim. Takk fyrir það Gummi minn :* Svo fattaðist það versta. Taskan hennar Kristínar var horfin :| Það var leitað útum allt en hún fannst bara alls ekki. Svo í gær þá fórum við í bankann því allt var náttúrulega horfið, debetkortið hennar og svona. Þá var búið að hreinsa allt útaf reikningnum hennar? Hver gerir svona lagað. Þetta er svívirðing á hæðsta stigi ef ég á að segja eins og er. Á mánudaginn kemst hún að því hver þetta er því lögreglan ætlar að aðstoða hana. Thank god.

En já, fyrst þetta er svona hálfgerð dagbók þá er fínt að koma einhverju frá sér hérna. Ég hef svosem enga þörf fyrir að blogga. En þetta er ágætt uppá framtíðina þar sem við erum orðin svo nútímaleg. Núna bara smelliru þessu á netið í stað þess að skrifa þetta. Þó það sé nú mikið skemmtilegra að skrifa í fallegar dagbækur :) Já ég held ég sé farin að rugla bara eitthvað núna. Þannig í kveð í bili. Tódan.

laugardagur, ágúst 14, 2004


* * * * * * * * *

* 13 ágúst 2004 *

Nei takk..
Farðu.
Bæ.

föstudagur, ágúst 13, 2004


* * * * * * * * *

* 10 ágúst 2004 *

Wacken....
Já þetta var ansi magnað..
Feginn að hafa meikað þetta þrátt fyrir ákveðin veikindi. Hlakka til að sjá lineup-ið fyrir næsta ár. Ef það verður gott þá fer maður potþétt aftur.

Motörhead og DIO eru böndin sem stóðu uppúr hjá mér. Ég grét þegar ég sá DIO, þóttist hafa fengið e-h drullu í augað.. algjört krútt..

Flugum út á þriðjudegi og í stað þess að fara á hótel, fórum við bara beint á wacken.
Ég vaknaði rosalega veik þá og við fórum í hamburg þar sem ég var meðhöndluð af læknum...Fórum á hótelið og vorum eina nótt þar og skelltum okkur svo aftur á wacken. Helvítis leigubílstjórinn skutlaði okkur að VIP entrance-num sem var aaaaaaaaaaaaalveg hinum megin í bænum þannig við sprettuðum af stað í gegnum bæinn því við heyrðum að motörhead voru að byrja að spila. Komum í tæka tíð og náðum mest megnis af showinu. Ég er ekki frá því að hafa fengið smá kökk í mig þegar ég sá Lemmy. Ég leit oft af sviðinu til að horfa á Birki, hann var svo fallegur. Alveg glampaði í augun hans þegar hann sá stórstjörnurnar í uppáhaldsbandinu hans. Ég stóð upp á tær og kyssti hann og knúsaði. Perfect moment :) Hittum svo Hamf-ara og hann sýndi okkur tjaldbúðirnar sem íslendingarnir voru búnir að koma upp. Við gistum þar alveg fram á laugardag, en við kláruðum að sjá alla tónleikana þá sem við höfðum áhuga á og þegar hátíðin var búin tókum við farangurinn okkar og létum okkur hverfa af svæðinu. Við fengum strax leigubíl en ef við hefðum klárað nóttina og sofið eins og flest allir gerðu þá hefðum við aldrei getað komist í flug. Það hefði allt verið stappað þarna. Við fórum á flugstöðina í hamburg og sváfum þar á bekkjum. Fyrsta skipti alla helgina sem við vöknuðum ekki kósveitt og með ógeðisdýr labbandi á okkur heh.

Þetta var alveg topp fólk sem við vorum með þarna. Ég fór samt ekki að sjá eins mikið og ég vildi, útaf veikindum en ég sá allt það sem ég vildi helst sjá. Annars finnst mér frekar kaldhæðnislegt að á þessum 40 þúsund manna tónleikum var ekki nein líkamsáraskærð, ekki nein nauðgun. Það er svo rólegt yfirbrag yfir okkur rokkurunum ;)

Birkir keypti svo mikið flott handa mér. Hann er algjört æði. Hann gaf mér Suicidal Tendencies hettupeysu, og geðveika Gorgoroth peysu. Dio bol, bathory bol. Diska. 2 skó. Er hann ekki bestur? Ó jú!

Þannig já, þessi ferð var frábær í alla staði. Vil þakka öllum sem voru þarna með okkur. Þetta var æðislegt.


þriðjudagur, ágúst 10, 2004


* * * * * * * * *

* 26 júlí 2004 *

Ligg hér uppí rúmmi að hlusta á fögru tóna Ellu Fitzgerald í ferðageislaspilaranum hans afa. Ótrúleg manneskja. Ég verð alveg ný sál við það að hlusta á hana. Tónlist er farinn að skipa stórann sess í lífi míni. Hvort það er Rokk, Blús eða Sinfónía þá á það hug minn allann. Fyrir utan eitt stórkostlegt eintak af manneskju. Sú manneskja er væntanlega unnustinn.

Ég fer út eftir 9 daga. Ég er farinn að hlakka frekar mikið til. :)
Ótrúleg upplifun held ég. Að sjá svona margar góðar hljómsveitir og mínar 2 uppáhalds. Ég virðist ekki blogga um neitt annað þessa dagana. Er það spennt. Samt. Djöfull verður gaman hjá okkur öllum sem förum. Erum alveg 30 manna hópur. www.wacken.com fyrir ykkur sem langar að forvitnast um herlegheitin sem ég er á leið á.

Annars smá fréttir, helgin fór í vitleysu og rugl held ég. Er ekki alveg klár á því. Ég virðist vera ansi gleyminn þessa daganna.. Er t.d ekki ennþá búinn að sækja mér passa og ég er að fara út eftir nokkra daga? :S Það reddast. Er búin að fara nokkrum sinnum í bíó í vikunni. Shrek 2 og Spiderman 2. Get ekki sagt að Spiderman myndin hafi verið góð, fannst svo mikil rómantík og drama í henni. En Shrek 2 var algjört æði. Hló og hló. En það sem fór mest í pirrurnar á mér við að vera á þessari mynd er gaurinn sem sat hliðina á mér. Djöfull var hann með ógeðslega feik og asnalegann hlátur. Ég hefði helst vilja reka sverði í gegnum hálsinn á honum. Hann fór þvílíkt í mig.


Ég kveð, yfir og út.
Tódan...


mánudagur, júlí 26, 2004


* * * * * * * * *

* 22 júlí 2004 *

Ég fæ að vita á morgun fyrir víst hvort ég sé á leiðinni til Spánar í heilt ár eða ekki. Ég er svo innilega að vona að ég fari. Ef ég fer þá hverf ég burt frá klaka vor í september. Eruði ekki feginn? :þ
 
Tjah lítið í fréttum frekar en vanalega. Ég er samt að fara út í þarnæstu viku eins og flestir vita samt. Þýskalands. Fæ að sjá Motörhead. Gleði gleði gleði!! Uppáhalds hljómsveitin mín.
Svo eru þetta böndin sem ég ætla að sjá :
 
Amon Amarth,
Anthrax,
Arch Enemy, 
Cannibal Corpse, 
Cathedral, 
Children of Bodom, 
Death Angel,
Deicide, 
Destruction,
Dio, Helloween, 
Hypocrisy, 
Mayhem, 
Misery Index, 
Motörhead, 
Nocturno Culto, 
Satyricon, 
Saxon, 
Thora.

Allavega, þetta er svona mestmegnis það sem ég er að fara gera. Og Þannig það verður voða lítið af mér skrifað hér á næstunni.



fimmtudagur, júlí 22, 2004


* * * * * * * * *

* 15 júlí 2004 *


fimmtudagur, júlí 15, 2004


* * * * * * * * *

* 10 júlí 2004 *

Merkilegur anskoti. Alltaf þegar ég sest við tölvuna og ætla að blogga, þá kemur ekkert af því sem mig langar að segja. Oft langar mig að koma með skoðanir á hinu og þessu en kem ekki einu sinni tísti uppúr mér sem ég var búin að hugsa um. Já merkilegur anskoti skal Tódan segja.

Er búin að vera á flakki í mest allan dag. Skellti mér svo niður í búð til Birkis og beið þangað til hann lokaði. Keyrðum aðeins um í umferðinni. Fórum svo aftur niður í búð og fengum okkur gotterí í poka. Því við ætluðum á Spiderman 2. Kíktum aðeins heim til hans að pikka nótur á bassann. En nenntum því ekki lengi og skelltum okkur hingað heim í fjörðinn góða. Héngum inn í herbergi bara að specca dagsránna á skjá 1. Gleymdum bíóinu. Margt annað hægt að gera í staðinn ;) *vink,vink-nudge,nudge* Og núna er karlinn sofnaður. Vel þreyttur greyið. Á meðan ég er alveg hyper og rek við hægri vinstri. Örugglega útaf sælgætisjukkinu hah :S

Annars var gærdagurinn frekar skondinn. Ætlaði að fara í jarðaför hjá Droplaugu, ömmu hennar Þuríar. Hjördís kom með mér og mættum við rétt um 1:30 niður í Hafnarfjarðarkirkju þar sem athöfnin átti að fara fram. Undruðum okkur á því af hverju enginn var kominn. Okkur fannst þetta mjög skrítið þar sem athöfnin átti að byrja 1:30. Þannig ég gékk að kistunni og á henni stóð Sigurður. :| Þá hélt ég að öllu væri nú lokið. Skildum ekkert hvað var í gangi, maður var bara eins og karakter í Twilight Zone. En nei nei, þá mættum við alveg degi of snemma í útförina. Haha, kannski dálítið fyndið á svona sorgarstundu. Ég fór svo bara heim með Hjördísi skvís, fengum okkur að éta og svo passaði ég Brynjar í einhvern hálftíma meðan Hjördís skaust út. Sótti svo Birki og við skunduðum uppí mosfellsbæ í kryddara með Evu . Þá hringir Helgi Sævar (x-kærasti) og spjallar aðeins. Hann sagði mér að hann hefði verið í útför hjá afa sínum í dag. Og ég gríp frammí, alltaf sami dóninn og segi honum frá deginum sem ég og Hjördís upplifðum, svo segi ég honum nafnið á manninum sem var í kistunni og þá hafði það verið afi hans. Rosaleg tilviljun. Merkilegt hvað þetta hittist vel á. :S Hann hló nú bara og kallaði okkur kjána, og þetta gæti komið fyrir alla.

Ég er að spá í að skella mér uppí. Þessi færsla sem átti að vera um ekki neitt og bloggleysi varð víst bara ansi löng á þessum 10 mín híhí. Well, góða nótt :* Ta,ta!

laugardagur, júlí 10, 2004


* * * * * * * * *

www.toda.tk